Eggheimta

Þegar eggbú hafa náð ákveðinni stærð og talið er að eggin séu orðin þroskuð er komið að eggheimtu. Með ómskoðun um leggöng tæmir læknir eggbúin í eggjastokkunum. Eggbúsvökvinn er sogaður út með fínni nál og safnað í tilraunaglös sem starfsmaður úr hjúkrunarteymi hefur eftirlit með.
Fósturfræðingur tekur síðan við glösunum og leitar að eggjum í eggbúsvökvanum undir smásjá. Að því loknu eru eggin hreinsuð af blóði og eggbúsvökva með sérstakri lausn. Eggjunum er síðan komið fyrir í ræktunarskál með ætisvökva og þau geymd í hitaskáp þar til frjóvgun fer fram.

Egg eru viðkvæm fyrir breytingum á umhverfi sínu, svo sem hitasveiflum og ljósi. Því þarf meðhöndlun þeirra undir smásjá að vera bæði nákvæm og hröð. Hver eggheimta getur skilað allt frá einu eggi upp í fjörutíu egg, en að meðaltali fást 8-12 egg. Í einstaka tilvikum finnast engin egg þrátt fyrir að eggbú hafi verið til staðar.

Aðgerðin fer fram á skurðstofu þar sem boðið er upp á verkjalyf og kæruleysislyf auk staðdeyfingar við legháls. Á skurðstofunni eru skjáir sem gera sjúklingum kleift að fylgjast með framgangi eggheimtunnar og jafnvel sjá fyrsta eggið finnast.

Á rannsóknastofu Livio sjá reynslumiklir fósturfræðingar um meðhöndlun eggjanna. Rannsóknastofan býr yfir meira en 30 ára reynslu af glasafrjóvgun og leggur ríka áherslu á gæði, öryggi og persónulega umönnun á hverju stigi meðferðar.