Aðferðir við frjóvgun
Við glasafrjóvgun eru notaðar tvær mismunandi aðferðir til að frjóvga eggin: hefðbundin glasafrjóvgun (IVF) og smásjárfrjóvgun (ICSI).
Val á aðferð fer meðal annars eftir gæðum sæðissýnisins og reynslu úr fyrri meðferðum. Hefðbundin glasafrjóvgun er yfirleitt notuð þegar sæðissýni uppfyllir ákveðin skilyrði um fjölda og hreyfanleika sáðfrumna. Smásjárfrjóvgun er hins vegar valin ef sæðisgæði eru skert eða ef frjóvgun hefur reynst ófullnægjandi í fyrri meðferð.
Hefðbundin glasafrjóvgun (IVF)
Nokkrum klukkustundum eftir eggheimtu eru eggin undirbúin til frjóvgunar. Fyrirfram ákveðið magn af hreinsuðum sáðfrumum er bætt við hvert egg og sáðfrumurnar sjá síðan sjálfar um að frjóvga eggið. Að því loknu eru eggin ræktuð í hitastýrðum hitaskáp yfir nótt. Daginn eftir er metið hvort frjóvgun hafi átt sér stað.
Smásjárfrjóvgun (ICSI)
Við smásjárfrjóvgun er ein valin sáðfruma sprautuð beint inn í eggið með hjálp sérhæfðs smásjárbúnaðar.
Áður en frjóvgun fer fram eru næringarfrumur sem umlykja eggið fjarlægðar með hárfínum pípettum og sérstöku ensími. Eftir hreinsun eru eggin sett í ræktunarskál með ætisdropum sem eru varðir með olíu. Valin sáðfruma er undirbúin og síðan færð inn í eggið með hárfínni glerpípettu undir smásjá.
Að lokinni frjóvgun eru eggin ræktuð í hitastýrðum hitaskáp yfir nótt og niðurstaða frjóvgunar metin daginn eftir.
Eftir frjóvgun
Óháð því hvort notuð er hefðbundin glasafrjóvgun eða smásjárfrjóvgun eru frjóvguðu eggin ræktuð áfram á rannsóknastofunni. Þroskun fósturvísanna er síðan fylgt eftir daglega þar til kemur að uppsetningu eða frystingu þeirra.