Sæðisrannsókn

Sæðisrannsókn er mikilvægur þáttur í mati á ófrjósemi. Með rannsókninni er metinn fjöldi sáðfrumna, hreyfanleiki þeirra og aðrir þættir sem geta haft áhrif á frjósemi.

Bókun tíma

Tíma fyrir sæðisrannsókn þarf að bóka fyrirfram. Hægt er að:

  • Bóka tíma í Noona
  • Senda tölvupóst á reykjavik@livio.is
  • Hringja í síma 430-4000

Mikilvægar leiðbeiningar fyrir sýnatöku

Til að tryggja áreiðanlegar niðurstöður er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Æskilegt er að þegar sýnið er búið til séu tveir sólarhringar frá síðasta sáðláti
  • Það er mikilvægt að viðhafa hreinlæti þegar sýnið er tekið. Liminn skal þvo með sápu og vatni daginn áður en bara með vatni sama dag
  • Sýni skal skilað í þvagprufudós sem hægt er að kaupa í apóteki
  • Sýnið má ekki vera eldra en klukkutíma gamalt og gott er að halda því volgu á leiðinni. Hægt er að búa til sýnið á staðnum fyrir þá sem það þurfa
  • Merkja þarf sýnaglasið með nafni og kennitölu, fylla út spurningalista og sýna gild skilríki þegar sýninu er skilað
  • Niðurstaða rannsóknarinnar er send á tilvísandi lækni

Undir eyðublöð hér á síðunni má nálgast leiðbeiningar og eyðublað fyrir skil á sæðissýni.