Aðstoð við egglos

Ef egglos er óreglulegt getur í sumum tilfellum verið nóg að örva eggjastokkana með vægri lyfjameðferð, annað hvort í töfluformi eða með sprautum, til að koma af stað egglosi. Ef sæðisgæði eru eðlileg eru góðar líkur á að par nái þungun með samförum heima.

Hægt er að reyna þessa meðferð í nokkrum tíðahringjum. Ef þungun verður ekki þrátt fyrir endurteknar tilraunir er næsta skref yfirleitt tæknifrjóvgun.

Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.

 

Sérfræðilæknar Livio

Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.

Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.

Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.